Mynd eða annað efni sent í annað tæki með Bluetooth
Notaðu Bluetooth til að senda myndir, myndskeið, nafnspjöld og annað efni sem þú
hefur búið til í tölvu eða samhæfan síma eða tæki vinar.
1 Veldu hlutinn sem senda skal og haltu honum inni, veldu síðan
Senda
>
Með
Bluetooth
á sprettivalmyndinni.
2 Veldu tækið sem á að tengjast við. Ef tækið birtist ekki velurðu
Valkostir
>
Ný leit
til að leita að því. Bluetooth-tæki sem eru á sendisvæðinu birtast.
3 Ef hitt tækið biður um lykilorð slærðu það inn. Slá þarf inn sama lykilorðið, sem
þú getur sjálfur valið, í bæði tækin. Sum tæki hafa fyrirfram skilgreind (föst)
lykilorð. Nánari upplýsingar er að finna í notendahandbók tækisins.
Lykilorðið gildir aðeins fyrir þessa tilteknu tengingu.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.