Nokia Asha 303 - Lykilorð

background image

Lykilorð

PIN- eða PIN2-

númer

(4-8 tölur)

Slíkt númer kemur í veg fyrir að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi

eða er nauðsynlegt til að fá aðgang að tilteknum aðgerðum.

Hægt er að stilla símann þannig að hann biðji um PIN-númerið

þegar kveikt er á honum.

Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu eða þú gleymir þeim

skaltu hafa samband við þjónustuveituna.

Ef þú slærð inn rangt PIN- eða PIN2-númer þrisvar sinnum í röð

þarftu að opna það með PUK- eða PUK2-númerinu.

PUK- eða PUK2-

númer

(8 tölur)

Slíkt númer er nauðsynlegt til að opna PIN- eða PIN2 númer.

Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi númer fylgja

ekki með SIM-kortinu.

IMEI-númer

(15 tölur)

Númerið er notað til að auðkenna gilda síma í símkerfinu.

Einnig er hægt að nota númerið til að loka til dæmis stolnum

símum.

Hægt er að sjá IMEI-númerið með því að hringja í *#06#.

Grunnnotkun

11

background image

Lásnúmer

(öryggisnúmer)

(að lágmarki 5

tölustafir)

Númerið kemur í veg fyrir að síminn sé notaður í leyfisleysi.

Þú getur stillt símann þannig að hann biðji um lásnúmerið sem

þú hefur tilgreint. Sjálfgefinn númerakóði læsingar er 12345.

Haltu númerinu leyndu og á öruggum stað, fjarri símanum.

Ef þú gleymir númerinu og síminn er læstur þarftu að leita til

þjónustuaðila. Þú gætir þurft að greiða viðbótargjald og

persónulegum upplýsingum í símanum kann að verða eytt.

Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care þjónustuveri eða

söluaðila símans.